|
Aftur til Árósa
|
Það var mikil gleði í Árósum síðustu helgi, jafnmikil gleði og það var snjór! Grétar rúllaði upp vörninni og náði sér í 11-una :-) eins gott fyrir hann annars hefði hann varpað skugga á fjörið um kvöldið tíhíhí. Það var mjög við hæfi að fagna árangrinum á Flintó með Tótu & Gumma og Ingu & Árna enda áttu þau öll ansi mikið í þessu ;-) settu svo mikinn svip á okkar Árósardvöl. Við kíktum líka á kollegið og hittum vini okkar þar - skrítið að sitja aftur í fællesherberginu en eiga ekki lengur heima þarna sniff. Næsta helgi inniheldur m.a. vín- og súkkulaði kynningu og kveðjudjömm þar sem Liza vinkona yfirgefur Strassborg í næstu viku. Knús í krús og góða helgi.
PS. Komnar MYNDIR. |
|
On the road again
|
Þá er bara strax komið að fyrsta ferðalagi ársins, flýg til Köben í fyrramálið og fer þaðan til Árósa ásamt Grétari. Ekki verra að byrja 2006 svona :-) Það verður yndislegt að koma aftur enda höfum við saknað Árósa ansi mikið. Tóta og Gummi ætla að vera svo yndisleg að hýsa okkur :-) Hittum líka m.a. Ingu og Árna & Danina á Grenavejkolleginu. Hlakka svo til að sjá alla... Annars segi ég bara góða helgi elskurnar þegar þar að kemur. Verið góð við hvort annað. |
|
Nýjar myndir
|
Lífið í Strassborg ansi janúarlegt þessa dagana, það er svo kalt úti að ég horfi illilega á hjólið mitt þegar ég sest á það á morgnana. Mjög dugleg þ.a.l. að gera cozy hluti eins og fara í bíó og horfa á dvd, myndi taka sængina mína með mér í bíó ef það væri hægt. En það verður nú eitthvað kíkt út á lífið um helgina til að láta ekki veturinn alveg hafa yfirhöndina. Ég er svo á leiðinni til Árósa í næstu viku, tek m.a.s. á móti Grétari þegar hann lendir á Kastrup. Get ekki beðið að koma aftur á heimaslóðir og hitta yndislega fólkið okkar þar :-) Komnar myndir frá jólunum og læt eina fylgja með af þessum myndarlegu tengdafeðgum. |
|
There and back again
|
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla! Bloggið fór í jólafrí líkt og eigandinn, ágætt að hvíla aðeins pennann (fingurgómana). Síðustu vikur búnar að vera viðburðarríkar:
1. Haldin voru gleðileg jól, takk fyrir öll flottu jólakortin! 2. Ég útskrifaðist (mjög óformlega) og Grétar skilaði ritgerðinni. 3. Jólaboð og kaffihús og matarboð og saumaklúbbar. 4. Ég átti hálf-stórafmæli og hélt partý sem var hápunktur ferðarinnar, mikið dansað og knúsað yndislega vini. Ástarþakkir fyrir mig! 5. Áramótin gengu í garð, árið 2005 kvatt með söknuði enda eitt viðburðaríkasta ár sem ég hef upplifað en jafnframt mikil tilhlökkun eftir 2006 :-) Life can only ever get better & better (Karenína getur bara orðið væmnari með árunum tíhí) 6. Komin aftur til Strætisborgar og strax búin að fara á kaffihús og í bíó. Út að borða og í bíó í kvöld & matarboð ásamt einhverju skralli á morgun. Áramótaheitið í ár var sem sagt ekki að slappa mikið af frekar en fyrri daginn. Góða helgi og njótið þrettánda-föstudagsins. PS. Við systurnar hér að ofan á hinni klassísku jólamyndatöku fyrir framan jólatréið. |
|
| |