
|
Happy Thursday
|
 Síðasta helgi í Brussel var meiriháttar, oh hvað var yndislegt að hitta stelpurnar og Sheer. Við héldum upp á afmælið hennar Hönnu með pomp og prakt - auðvitað með því að gera lítið annað en að borða góðan mat, drekka gott vín og dansa við góða tónlist. Ég og Hanna gerðumst m.a.s. svo frægar að syngja "Can't take my eyes off of you" fyrir framan lítinn hóp af krökkum í miðbæ Brussel (long story! og ekki okkar hugmynd! ;-) Takk fyrir æðislega helgi elskurnar :-)
Í dag eru nákvæmlega 11 vikur síðan ég kvaddi Grétar á flugvellinum með kökk í hálsinum og tár í augunum. Í þessum skrifuðu orðum situr hann sofandi uppí háloftunum á leið til Frankfurt, 7 tímar þangað til ég sæki hann niðrí bæ. Orð Tori Amos lýsa þessum degi og allri helginni vel ;o)
It's a happy day we are here to gather to stay not a person will keep us away our life is the greatest today. |
|
Myndir komnar frá Swiss
|
Ohhh m.a.s. skrítin próf sanna að ég sé hagfræðingur :-/ tíhíhí Góða helgi elskurnar!

Viðskiptajöfur Þú ert nýjungagjörn, yfirveguð félagsvera.
Það fyrsta sem viðskiptajöfurinn hugsaði þegar Ólafur og Dorrit trúlofuðust var hvaða áhrif það myndi hafa á gengi íslensku krónunnar. Honum finnst Donald Trump vera svalur... líka peningaklemmur. Hann ætlar, er, var eða vildi að hann hefði verið í Versló - en ekki söngleiknum.
Viðskiptajöfurinn tekur ákvarðanir með heilanum en ekki hjartanu og þarf að hugsa sig um þegar einhver spyr hann: "Peningana eða lífið!?" Hann hefur stáltaugar og getur lagt allt undir og í framtíðinni verður viðskiptajöfurinn annað hvort moldríkur - eða staurblankur.
Það er toppurinn að vera í teinóttu.
Hvaða tröll ert þú? |
|
Surreal Life
|
 Margt sem hefur á daga mína drifið síðan síðast. Ferðin til Sviss var æðisleg, við vorum í fjallakofa í 2000 metra hæð í einni fjallshlíð Alpanna og útsýnið á svölunum to die for flott. Það mætti halda að ég komi frá Danmörku en ekki Íslandi - mér leið eins og Heidi sem elskaði fjöllin þar sem afi hennar bjó hahaha. Það var ekki hægt að slíta augun af þeim. Skemmtunin náði samt sem áður að yfirbuga útsýnið, endalaust borðað, sötrað gott hvítvín, dansað og farið í leiki og labbitúra. Mér tókst m.a.s að láta uppáhalds lagið mitt verða lag helgarinnar! Já maður hefur ýmis áhrif tíhíhí.
Svona til að milda áfallið við að byrja erfiða vinnuviku eftir helgina var bónus kvöld á mánudaginn í tilefni af kveðjupartý þýsks starfsnema, Juliu. Í tilefni af því að veturinn er nýkominn til Strasbourg var sumarþema, allir mættu í sumarfötum og hitinn í íbúðinni var hækkaður uppúr öllu valdi. Margir sumardansar teknir :o) Jæja til að tryggja að dagskráin mín verði yfirfull af skemmtilegum ferðalögum þá ætla ég til Brussel um helgina, ég og Anna Heiða ætlum að heimsækja Hönnu okkar og vill svo skemmtilega til að Hanna á afmæli á laugardaginn. Hlakka mikið til að sjá stelpurnar mínar og hina einu sönnu höfuðborg Evrópu ;-). Það eru komnar myndir frá Wurzburg ferðinni og fleiri myndir á leiðinni. Getið smellt á þessa mynd til að stækka hana. Yfir og út til ykkar mín kæru. |
|
Fjallaloftið tæra
|
 Hæhó hæhó. Hvað segja bændur? Ég er hress og líka mjög hress. Síðustu helgi var djammað fyrir allan peninginn, partýið hjá mér var þó ég segi sjálf frá meiriháttar! Mikið dansað og urðu allir frekar hressir af spænska rauðvíninu og þýska hvítvíninu. Er mjög hissa að konan á neðri hæðinni hafi ekki sprengt dekkin á hjólinu mínu. Ég er að fara til Sviss í fyrramálið :o) Við erum átta manns búin að leigja okkur fjallakofa í Ölpunum og keyrum þangað á morgun og verðum alla helgina. Úff hvað það verður gaman. Ég hef heldur aldrei komið til Sviss og er því extra spennt. Í dag eru 2 vikur þangað til Grétar kemur, ég og Strasbourg getum ekki beðið að sjá drenginn. Bring on the love tíhíhí :o) Í lokinn - chiao & bon weekend. |
|
Gleðin góða-lukkan ljósa
|
 Loksins kom að því að ég gat sett mér deadline sem virkaði – ég ákvað einfaldlega að halda partý – af hverju datt mér þetta ekki fyrr í hug? Það virkaði ekki einu sinni að nota flutning milli landa og að byrja í nýrri vinnu sem deadline! Get ekki haldið partý með einhverja ritgerð hangandi yfir mér. Lokaritgerðin góða er á leið norður í litlum bláum kassa, fallegasti kassi sem ég hef nokkurn tíma séð. Mér fannst m.a.s. gaman að bíða í 20 manna röð á pósthúsinu og brosti svo mikið að Frökkunum varð ómótt. Jább það verður heldur betur slegið upp partýi í kvöld og á ég von á 20 manns :-) Annað kvöld er svo annað partý - jiminn eini, ég hef ekki djammað svona mikið síðan ég var unglingur og vissi ekki muninn á rauðvíni og hvítvíni bwhahaha.
Síðasta helgi í Wurzburg var eins og við mátti búast alveg geggjuð. Ég og Heidung endurtókum Strassborg-taktíkina að gera ekkert nema versla, fara á kaffihús, út að borða og hlæja okkur máttlausar. Það mætti halda að við þurfum ekki á neinu nema kaffi, hvítvíni og kokkteilum að halda – sérlega hollt hehe. Bætum upp óhollustuna með öllum hlátrinum :-) Myndir koma von bráðar. Vona að þið eigið öll virkilega góða og óholla helgi framundan. |
|
|
|