My so called life

- | - MYNDIR - | - E-MAIL - | - MSN - | - SKYPE - | - GESTABÓK - | -

Peyjar og pæjur

Alda Lilja
Aldís
Anna Ósk
Anna Þorbjörg
Atli Már
Árni
Áslaug Harpa
Ásta Björk
Begga
Birgir
Daniel
Eiríkur
Erla Dögg
Grétar minn
Harpa Rún
Helga Björt
Helga Rún
Herdís
Hrund
Inga
Íris
Ljósálfur
María
Pink Ladies
Rannveig
Sverrir
Tóta
Þóra

föstudagur, apríl 29, 2005
Freaky Friday
Sumarið er formlega komið, ég yrði samt alls ekkert ósátt ef sumarveðrið myndi aðeins láta bíða eftir sér! En hey, maður ætti varla að óska sér einhvers sem ekki er hægt að stjórna. Hér er bara vinna alla daga, þessi mastersritgerð alveg stórfengleg skemmtun hmmm haaa. Annars er náin framtíð aðeins farin að skýrast hjá okkur, flytjum örugglega heim í haust og ég flyt svo til Strassborg í janúar og verð hjá utanríkisþjónustunni í 6 mánuði :-) Nú er bara að grafa djúpt ofan í heila og finna alla frönskuna sem átti einu sinni heima þar ;-) Ca serai superbe!

Síðasta helgi var með eindæmum róleg og þá er um að gera að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig. Annað kvöld er Tour des Chambres (sem er einmitt franska og þýðir ferð um herbergin hehe). Þetta verður GEGT MEEGNUM stemning svo ég vitni nú í litlu systur. Á sunnudaginn er svo brunch hjá Önnu og Tjörva, brilliant! Bon weekend!

PS. Setti inn myndir frá Saybia & Amalgam tónleikunum, svo menningarleg!

 
fimmtudagur, apríl 21, 2005
Á sumardaginn fyrsta

Gleðilegt sumar og kærar þakkir fyrir liðinn vetur! :o)

Sólargeislinn
Þú sólargeisli, sem gægist inn,
og glaður skýst inn um gluggann minn.
Mig langar svo til að líkjast þér
og ljósi varpa á hvern sem er.

 
sunnudagur, apríl 17, 2005
My friends

Virkilega góð helgi að líða undir lok, náðum að koma ýmsu í verk, lærdómur og þrif vúhú! Í gær kíktu Inga og Árni á okkur í spjall og Friends spil, þetta spil er algjört æði, maður er nánast hlæjandi allan tímann. Það besta var samt þegar Inga var orðin svo spennt að hún leit á Grétar og sagði "Chandler þú átt að gera". Ég ætlaði ekki að geta hætt að hlæja að þessu :-) Kannski passar þetta bara ágætlega, grínistinn Grétar sem Chandler og smámunasama, þrifóða Karen sem Monica hahaha =)

 
föstudagur, apríl 15, 2005
Myndir
Var að skella inn myndum frá grillpartýinu síðustu helgi, tékk it tékk it. Annars er almenn gleði ríkjandi á heimilinu - hvað getur mögulega verið skemmtilegra en að berjast við heimildir og gagnaleit fyrir mastersritgerðina! Bara nóg að gera í þeim efnum....en guði sé lof að það koma helgar inn á milli svo það sé hægt að lyfta sér upp ;-) Reyndar koma helgarnar eiginlega aðeins OF OFT, er bara ekki að ná því hvað tíminn líður hratt! En planið þessa helgi er annars vegar lærdómur og kannski video í kvöld. Annað kvöld ætla svo Inga og Árni að kíkja í heimsókn. Aldrei að vita nema það verði tekið round í einhvers konar spilamennsku :-)

Í gærkvöldi tókum við smá forskot á helgarsæluna og kíktum í mat til Önnu og Tjörva, alveg meiriháttar gaman, takk fyrir okkur!!

Góða helgi esssskurnar....

 
laugardagur, apríl 09, 2005
God lørdag
ég vaknaði á undan vekjaraklukkunni í morgun! Húrra fyrir mér ;-) En á þessum bæ er vaknað snemma á hverjum degi núna, nema kannski á morgun þar sem við erum á leiðinni í fjörið í kvöld. Fyrsta grill-kokktaila-partý ársins hjá Gumma og Tótu yey! Hlökkum mikið til enda verður fullt af skemmtilegu fólki á svæðinu - og Karenínu finnst langbest að fá sér kokktail, grillaðan kjúlla og Breezer með góðu fólki. Húrra fyrir því. Stefnum á að vera dugleg með myndavélina, sýnist nefnilega fólk vera nokkuð öflugt í að kíkja á myndasíðuna, ekkert nema gott um það að segja.

Í gær voru rólegheit eftir að við lögðum bækurnar frá okkur, horfðum á Alexander. Fannst sú mynd bara EKKI sérstök, langdregin og eiginlega meiri ónákvæm heimildarmynd um afrek hins unga kóngs heldur en stórmynd. Í þessum flokki hafði Troy vinninginn, og Brad Pitt betri í að leika mikilmenni heldur en Colin Farrell. En óneitanlega eru þeir báðir sæmileg augnakonfekt hehe ;-)

 
laugardagur, apríl 02, 2005
Myndir & helgin
Nýjar myndir smellið hérna :c) Í gær fórum við í mat til Tótu og Gumma, mikið spjallað og mikið hlegið. Við höfðum svo mikið að tala um að það voru ennþá umræðu-afgangar þegar við fórum eftir rúmar 6 klst hjá þeim! Þarf greinilega nokkra hittinga til að bæta upp fjarveruna síðustu vikur hehe. Takk fyrir frábært kvöld!

Í kvöld erum við að fara að hitta Helgu Björt og Ingabjörn. Ætlum út að borða saman eftir smá fordrykk hjá þeim og bralla svo eitthvað skemmtilegt. Hlökkum mikið til.. En fyrir utan allt þetta skemmtilega fólk þá er líka slatti heimildalestur og ekkert sofið út nei nei. Góða helgi!

 

Smáfólkið

Anna Lovísa
Ásdís Arna
Birkir Snær
Brynjar Örn
Eiríkur Tumi
Ívar Snorri
Kristófer
Magnús Ernir
Malín Erna
Viktoría Arna

Eldra efni

september 2003
október 2003
nóvember 2003
desember 2003
janúar 2004
febrúar 2004
mars 2004
apríl 2004
maí 2004
júní 2004
júlí 2004
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
febrúar 2007
september 2009