 Já bara vika í Milano, er ekki að trúa að það fari að koma að þessu. Er byrjuð að dreyma svona stress drauma af mér að missa af lestinni eða flugvélinni. Dreymi alltaf svona þegar ég hlakka úbermikið til einhvers. Fyrir tvítugsafmælið mitt t.d. dreymdi mig stöðugt drauma eins og ég hefði mætt í gatslitnum kjól, eða mætt 3 klst of seint í mitt eigið afmæli, eða einfaldlega gleymt yfirhöfuð að mæta af því ég hefði gefið fólki ranga dagsetningu. Æi þið þekkið þessar paranoid týpur ;c)
Í vikunni höfum við annars aðallega verið að njóta þess að hafa bíl, heimsóttum Maríu og Pálmar á mánudag. Frábært að sjá þau og sæta prinsinn Þorberg Frey. Í gær kíktum við svo til Tjörva og Önnu, alveg meiriháttar gaman. Annað kvöld er ég á leiðinni í stelpugeim hjá Helgu Björt.....bíllinn mun alveg örugglega hvergi koma við sögu þar ;c) Enn og aftur takk fyrir lánið á bílnum Tóta&Gummi!!
Læt annars fylgja með mynd af Jedúddamíu sætu sem er flutt á Hlemm ásamt pabba og Marteini. Mikið ætla ég að knúsa hana þegar við komum heim um páskana, held hún sé búin að sakna mín þvílíkt hehe. By the way við settum lykilorð á myndaalbúmin, hef örugglega gleymt að segja einhverjum frá því, sendið bara mail eða kommentið ef ykkur vantar það. Góða helgi og knúúúzzz til ykkar.  |