
|
MILANO
|
 Á morgun hefst ferðalagið, tek lestina til Köben og hitti þar Beggu og Pétur, þau eru svo yndisleg að leyfa mér að gista hjá þeim eina nótt. Verður frábært að sjá þau skötuhjú. Svo er það bara -prego prego- og -bella bella- og -bonjourno Italiano fuzball drenge- :c) Við mætum hver af annarri á fimmtudaginn, fyrst Anna Heiða, svo Karenína, Hanna Valdís og Sara. Það verður ansi líflegt í íbúðinni hennar Drafnar! Nú er bara að byrja að pakka við undirleik Beyoncé & Britney (ómissandi þegar maður pakkar ofan í tösku tíhí). Hlakka til að sjá ykkur skvísur og góða ferð =)
Síðasta helgi var frábær. Stelpupartý hjá Helgu Björt á föstudaginn sem var meiriháttar, takk fyrir mig Helga mín =)Mikið chattað og hlegið. Svo var bara afslöppun og cozyheit það sem eftir lifði helgarinnar. Er alveg niðursokkin í Angels&Demons eftir Dan Brown, alveg svakaleg bók, varla hægt að leggja hana frá sér!  |
|
Vika í bella Italia
|
 Já bara vika í Milano, er ekki að trúa að það fari að koma að þessu. Er byrjuð að dreyma svona stress drauma af mér að missa af lestinni eða flugvélinni. Dreymi alltaf svona þegar ég hlakka úbermikið til einhvers. Fyrir tvítugsafmælið mitt t.d. dreymdi mig stöðugt drauma eins og ég hefði mætt í gatslitnum kjól, eða mætt 3 klst of seint í mitt eigið afmæli, eða einfaldlega gleymt yfirhöfuð að mæta af því ég hefði gefið fólki ranga dagsetningu. Æi þið þekkið þessar paranoid týpur ;c)
Í vikunni höfum við annars aðallega verið að njóta þess að hafa bíl, heimsóttum Maríu og Pálmar á mánudag. Frábært að sjá þau og sæta prinsinn Þorberg Frey. Í gær kíktum við svo til Tjörva og Önnu, alveg meiriháttar gaman. Annað kvöld er ég á leiðinni í stelpugeim hjá Helgu Björt.....bíllinn mun alveg örugglega hvergi koma við sögu þar ;c) Enn og aftur takk fyrir lánið á bílnum Tóta&Gummi!!
Læt annars fylgja með mynd af Jedúddamíu sætu sem er flutt á Hlemm ásamt pabba og Marteini. Mikið ætla ég að knúsa hana þegar við komum heim um páskana, held hún sé búin að sakna mín þvílíkt hehe. By the way við settum lykilorð á myndaalbúmin, hef örugglega gleymt að segja einhverjum frá því, sendið bara mail eða kommentið ef ykkur vantar það. Góða helgi og knúúúzzz til ykkar.  |
|
Fríið búið
|
Nú er eins gott að maður drattist upp af afturendanum og fari að gera eitthvað af viti. Það er alveg stórhættulegt að það sé ekkert deadline á þessari mastersritgerð - engin tímapressa! Aldrei að vanmeta tímapressu, nauðsynleg til að stressa mann af stað. Annars ekki hægt að segja annað en að við höfum nýtt tímann að undanförnu til að hitta vini - sem er auðvitað langskemmtilegasti tímaþjófurinn ;c) Biggi eyjapeyjinn okkar kom í mat í síðustu viku, frábært kvöld þar sem nokkur round í Friends spilinu voru tekin. Svo buðu Inga og Árni okkur í brunch á föstudaginn, alveg meiriháttar! Namm hvað var margt gómsætt á boðstólnum, takk fyrir okkur! Við skötuhjúin kíktum svo í stuttan Fredagsbar seinna um daginn með bekkjarbræðrum mínum.
Helgin var svo frekar róleg, kíktum til Ingu og Árna og horfðum á dönsku forkeppnina fyrir Eurovision. Mjög gaman og langbesta lagið komst áfram (reyndar voru flest lögin glötuð). Annars erum við með bíl Tótu og Gumma í láni þessa dagana á meðan þau eru á Íslandi, algjört æði að vera á bíl:c) Týpískt samt um leið og við fengum bílinn þá kom heavy snjókoma! Aldrei verið svona mikill vetur hérna síðan við fluttum hingað. Mikið er ég heppin að Grétari finnst svona gaman að skafa hehe ;-) |
|
Myndir
|
 Komnar inn myndir frá síðustu helgi - enjoy kids. Svo er hérna smá glaðningur frá mér til ykkar, smellið hérna :c) Muna að kveikja á hátölurum. Over and out.  |
|
Helgin
|
 Frábær helgi liðin þar sem við vorum stríðshetjur annan daginn og kóngafólk hinn daginn. Fórum í paint ball með hópi af fólki á föstudaginn í tilefni af afmælinu hans Tods. Það var meiriháttar gaman. Um kvöldið var svo farið út að borða á Ítalíu. Á laugardaginn var svo prinsessupartý á kolleginu, svaka stemning. Setjum inn myndir frá helginni fljótlega. Erum sem stendur að reyna að kaupa miða á U2 tónleika - gjörsamlega vonlaust case.
Nú eru bara 17 dagar þangað til ég fer til Milano að hitta stelpurnar mínar :c) Ætlum fjórar skvísur að heimsækja Dröfn, get bara ekki beðið. Þá mun ég í alvörunni fara "út að borða á Ítalíu".  |
|
Smoochie smooch
|
 Já ég er löt í dag og alla aðra daga. Hvað gerist eiginlega í heilanum þegar maður klárar próf - allt í einu hef ég ekki einu sinni orku til að búa um rúmið man o man. Ég er ekki einu sinni byrjuð á Angels & Demons bókinni og öllum Economist blöðunum sem bíða eftir mér. Jæja ætli ég verði ekki að bíða eftir að fá algjört ógeð á aðgerðaleysinu, sjónvarpsglápinu og svefni hinna saklausu áður en ég kemst aftur í gírinn.
Síðasta helgi var alveg brilliant. Þvílík handbolta-og-matarveisla hjá Tjörva & Önnu á föstudaginn, takk fyrir okkur! Á laugardaginn hittum við Bigga & Dagbjörtu í bænum - fengum okkur kaffi og dýrindis belgískar vöfflur nammi namm. Um kvöldið var mexikano matarboð hjá Tótu & Gumma, mmmmm kærar þakkir fyrir okkur! Þetta var nú meira lostætið. Svo var að sjálfsögðu tekið Friends spil og ég þurfti m.a. að leika Phoebe að kyssa Gunther! :c)
Í gær kíktum við aðeins á útsölur, verslunaróði kærasti minn keypti 6 boli og eina peysu! Hittum svo Ingu og Árna og kíktum glorhungruð á Pizza Hut. Ákváðum svo að kíkja á Café Karenína (þar sem Grétar sæti þjónninn býr til kaffi og Karen býður uppá karamellu síróp). Að sjálfsögðu var líka tekið eitt Friends round - rosa gaman.
Tvær spurningar fyrir ykkur snúllurnar mínar:
1) Hvernig á prinsessu búningurinn minn að vera fyrir grímupartýið næstu helgi? Ætlaði mögulega að leigja búning en nei...það kostar bara morðfjár! Stelpurnar eiga sem sagt að vera prinsessur af því að Mary krónprinsessa á afmæli á laugardaginn hehe
2) Um hvað á ég að skrifa í mastersritgerðinni? Komið nú með nokkur juicy viðfangsefni takk ;c)  |
|
|
|