
|
School's out
|
Svei mér þá I'm feeling nice. Búin í prófum og fer ekki aftur í próf fyrr en ég álpast í endurmenntun eftir 30 ár. Fyndið að hugsa til baka þegar ég var alveg desperate á nýársdag yfir því að þurfa að fara læra heavy mikið daginn eftir - svo bara allt í einu búið. Ég sem var ekki einu sinni nógu neikvæð á blogginu eins og ég ætlaði að vera múhahaha :c) Annars má ég til með að segja að þökk sé Grétari, Friends og Idol (sem Gummi&Tóta lánuðu okkur takk takk!) þá er geðheilsan tiltölulega óskert eftir allt vinnuþjarkið. Grétar stóð sig eins og hetja hérna að hugsa um prófálfinn, eldaði mat, sótti McDonalds, hitaði te & kaffi, bakaði köku og keypti handa mér rósir! Hann m.a.s. þreif íbúðina (já það er lítil Monica í mér), gengur betur að læra vitandi af aðeins færri rykögnum hehe. Einnig er alveg merkilegt hvað matur bragðast betur ef einhver annar eldar - þá er ég ekki að meina að eldamennskan mín sé slæm uhumm - heldur er bara svo gott að þurfa ekki að leggja neitt á sig til að fá að borða :c) By the way þessi elska betri helmingurinn er byrjaður að blogga aftur, hjúkkit, brjálað álag á mér að halda ein út fréttasíðu.
Í gær var próflokapartý hjá Bigga og svona líka brilliant gaman! Fullt af skemmtilegu fólki og góðum Robbie Williams lögum - takk fyrir okkur!
Annars tek ég það fram í lokin að - þið eruð best! If anybody tells you otherwise I will hunt them down and kick their ass. |
|
|
 Halló góðan daginn gott fólk. Nú er allt að gerast í blogg-myndamálum, við erum komin með nýja myndasíðu, smellið bara á Myndir II hér að ofan. Alveg grilljón myndir, ætti bara að duga fram á næsta sumar ;c) Enjoy my friends.
Nú ég á bara eitt próf eftir, búið að ganga ágætlega hingað til, sérstaklega í dag! Fékk 11 sjúddírarírei já já ég bara sprengdi skalann (uhumm á ég nokkuð að taka fram að þetta er ekki 10-skali hehe). :c) :c)  |
|
|
 Örlítill kisuglaðningur í tilefni þess að helgin sé búin og bara ein vika eftir af prófunum :c)  |
|
Hálfnuð með prófin
|
vei vei næstum því klárað verk þá hálfnað er ;c) Nú eru bara tvö próf eftir sem eru reyndar munnleg demit. Maður fer bráðum að venjast þessum kvikindum. Ég er ekki ennþá byrjuð að læra fyrir næsta, svo gott að slappa af aaahhh. En ég neyðist víst að byrja ekki seinna en núna. Hlakka svo til að klára þetta, er alveg að detta úr próf-formi eftir því sem líður á háskólanám, hvert fór sjálfsaginn!
Annars vorum við afmælispar í gær, 4 ár vúhú! Áttum rosalega fínan og rólegan dag, bæjarferð, kaffihúsaferð og major afslöppun hérna heima aaahhh. Höldum svo vonandi meira uppá það þegar prófin eru búin, um að gera að nýta hvert afmælistækifæri til að gera eitthvað skemmtilegt :c). Adios meine freunde, haben Sie das gut. |
|
Mygli mygl
|
Jæja ég ráðlegg þeim lesendum sem eru jákvæðir og bjartsýnir að eðlisfari að lesa ekkert bloggið á komandi vikum. Hins vegar þeir sem eru almennt neikvæðir og nöldurgjarnir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi hér hehe...ó man hvað ég er ekki að meika próflestur! Síðustu dagar hafa verið gjörsamlega vonlausir og upphafs-próflestur gengur hægt. Erfiðustu prófin eru í næstu viku og ég á eftir að læra svo mikið auk þess að klára ritgerð. Ef þetta væru ekki síðustu háskólaprófin mín þá væri ég hætt í skóla í alvöru ;c)
Ok svona til að skrifa um eitthvað fallegt þá voru áramótin hér í Arhus alveg meiriháttar. Það var agalega gaman hjá Tótu og Gumma, takk fyrir okkur! Flottir flugeldar og setið langt fram á nótt með skemmtilegu fólki :c) Á nýársdag var svo dvd-maraþon, horfðum á Return of the King og Harry Potter 3. Mjööööög nice. Við setjum svo væntanlega fullt af cool myndum úr jólafríinu þegar prófin eru búin....sem sagt eftir heila eilífð buhu. Þangað til næst. |
|
|
|