Við erum gestalaus en glöð eftir geggjað góðan gestagang. Veðrið var alveg meiriháttar á meðan pabbi og Marteinn voru hérna, yfir 30 stig og heiðskírt. I love it. Nú hefur aðeins kólnað, hitinn horfinn til Íslands :c) og bara rúm 24 stig hér brrrr hehe. Við brölluðum margt með þeim peyjum, aðallega út að borða og á kaffihús. I love it more. Fórum líka í sveitina og heimsóttum Kresten vin þeirra. Kresten er með huge stóran garð þar sem eru kalkúnar, gæsir, hanar og endur. Ég sat í sólbaði undir eplatréi og var að lesa Da Vinci lykilinn þegar stór kalkúnn labbaði framhjá mér og andamamma með 3 andarunga. Geðveikt! Gerðist alveg barn náttúrunnar. Týndum fersk hindber og gular plómur af trjánum til að hafa í eftirrétt, mmm nammi namm. Daginn eftir keyrðum við aftur út á land og “klifum” þrjá hæstu tinda Danmerkur : Himmelbjerget, Yding Skovhøj og Ejer Baunehof, hæsti er 173 metrar. Littla flata landið okkar ;c) Takk fyrir komuna og takk fyrir okkur!
Nú eru bara 9 dagar þangað til við komum heim, hlakka ekkert smá mikið til. Hlakka mest til að knúsa fjölskyldumeðlimi og mínar yndislegu vinkonur. Vona bara að maður nái að nýta tímann vel, svo marga að hitta og margt að gera. Þangað til verð ég á ströndinni hér ef veðrið helst svona gott, annars fölna ég bara hehe. Maður er sko ekki búin að ganga í buxum eða sokkum síðustu 3 vikur! Gæti hugsað mér að vera sokkalaus með bleikt naglalakk á tánum allt árið ;-)
Í kvöld á þessum þrettánda föstudegi eru Ólympíuleikarnir í Trivial hjá Gumma og Tótu, stelpur á móti strákum. Uh oh, ég er ekki mjög öflug í svona almennri þekkingu, hagfræðin búin að henda öllu út! Fæ mér bara nógu mikið hvítvín, hlýt að verða klárari við það! En áfram Ísland í Aþenu, strákarnir okkar :c) Þið eigið samt varla séns í þessum riðli, so sorry. Já og til hamingju með afmælið elsku Aron 1 árs ofurtöffari. Góða skemmtun í veislunni á morgun. Go’ weekend alle sammen. |