Jæja það er nú aðeins að rætast úr veðrinu hérna, en ekki nærri því nóg fyrir sólsjúku Karenínu sem kemur að öllum líkindum eins og kríuskítur á litinn heim eftir mánuð. Jæja bara færri hrukkur í framtíðinni, verð að líta á einhverjar bjartar hliðar ;c) Allavega þá höfum við bara verið að vinna fullt síðustu daga og svo bara hafa það náðugt. Fórum á Spiderman í gær með Gumma og Pálmari. Alveg geggjuð mynd! Hrikalega skotin í Spiderman. Svo er ég með saumaklúbb annað kvöld og hlakka ég mikið til að fá skvísurnar til mín. Nú er byrjuð "löng helgi" hjá mér, fer ekki að vinna aftur fyrr en á fimmtudag. Hey var að bæta við link á sætustu frænku sem til er, litlu Hjaltadóttur. Vonandi eigið þið öllsömul alveg ágætis viku.
PS, við vinirnir fengum þakkarbréf frá konungsfjölskyldunni fyrir myndina sem við sendum brúðhjónunum, haha! Frekar fyndið að fá royal umslag merkt Amalienborg. Þau Mary & Frederik mæta einmitt til Arhus í fyrramálið til að leyfa borgarbúum hér að fagna brúðkaupinu þeirra. Kannski ég verði dönsk og kíkji niðrí bæ til að sjá þau veifa af svölunum =) |