Best að blogga áður en Magnea fer á verkstæði, this time for good! Þetta er orðið eins og "úlfur úlfur" hjá okkur þegar við hótum því að tölvan sé farin á verkstæði og við sambandslaus við umheiminn. Ég sem sagt fór með hana síðasta þriðjudag þar sem Grétar þorir ekki aftur inn fyrir dyrnar á þessu verkstæði. En þá var svo mikið að gera hjá köllunum að ég gat alveg eins komið með hana í dag, annars hefði hún bara setið ónotuð þar.
Freknurnar eru komnar úr dvala! Þvílíka blíðviðrið í gær, ég hef ekki verið brún og útitekin í 4 ár og ætla sem sagt að bæta fyrir það í sumar =) Það verður bara ég, ströndin og hafið!
Gleymdi alltaf að segja frá því að við settum inn fullt af nýjum myndum, ég treysti bara á að þið lesið öll bloggið hans Grétars.
Já og ég er loksins komin með nýtt gsm númer, ef einhverjum vantar það þá sendu mér bara mail, ætla ekkert að vera birta það á netinu. Aldrei að vita hvaða pakistanar eru að skoða síðuna ;-) Vonandi eigið þið góða viku! Til hamingju þið sem eruð búin í prófum og gangi hinum vel að þrauka fram að endalokum. |