Eftir skemmtilega en jafnframt afkastalitla helgi byrjar ný lærdómsvika. Var svo ódugleg við að læra um helgina að samviskubitið nagar mig. En laugardagskvöldið var svo skemmtilegt að ég þarf ekki nema hugsa um það þá hverfur sammarinn eins og skot. Grétari var sem sagt boðið á strákakvöld með vinum MÍNUM úr skólanum, sveiattan! Ég er greinilega ekki orðinn nógu mikill strákur í mér til að vera boðið á "poker-boys-night-out". Ég fékk því vinkonur mínar í stelpu-kaffihúsaferð á Café Ris-Ras, mjög huggulegt lítið kaffihús niðrí bæ. Það var alveg frábært að hitta þær og mikið spjallað. Um kl. 1 fór ég að hitta strákana heima hjá Tod og spilaði smá póker, vann m.a.s. smá pening he he. Við röltum síðan í bæinn á írska barinn og fengum okkur bjór. Laugardagskvöld eru uppáhaldið mitt!
Gleymdi síðast þegar ég bloggaði að óska Bigga innilega til hamingju með útskriftina. Congratz elsku Biggi! Nauðsynlegt fyrir hvern vinahóp að eiga nokkra úrvals lyfjafræðinga á lager :-)
Að lokum langar mig að benda ykkur lesendum á blogg Maríu og Tótu Arhus-skvísur, verið velkomnar í hóp pæjanna hér til hægri. |