|
Sæl öllsömul og gleðilegan þriðjudag. Ég vil byrja þetta blogg á að óska honum Sigga vini mínum innilega til hamingju með afmælið! Hér má sjá lýsingu á afmælisbarni dagsins og á þetta vel við Sigga.
Afmælisbarn dagsins: Þú ert skapandi og sterk/ur. Þú hefur einnig lúmskt skopskyn. Ef þú leggur hart að þér á næsta ári mun árangurinn ekki láta á sér standa.
Annars er allt gott að frétta. Ég vil taka það fram að allt sem Grétar segir um eldamennsku mína er helber lygi og ber að varast að hlusta á slíkar fullyrðingar. Ég viðurkenni að eldamennskan hefur verið af skornum skammti en þegar ég tek mig til og elda þá er það jafn ljúffengt og matseðill á frönskum veitingastað! Talandi um góðan mat þá var okkur boðið upp á dýrindis mat í fyrsta partýinu okkar hér í Arhus. Já það var djammað síðustu helgi með nokkrum öðrum íslenskum pörum. Það var alveg meiriháttar gaman og frábært að kynnast fleiri Frónbúum.
Systir mín hefur eitthvað verið að kvarta yfir því að ég hafi ekki tekið það fram hér á blogginu að hún eigi stað í lífi og hjarta mínu. Fyrirgefðu Harpa mín! Ég veit reyndar ekki hvar ég hefði endilega átt að segja þetta ha ha . Ég á sem sagt 14 ára systur sem stundar nám í Seljaskóla. Er hún mikill meistari enda er hún systir mín og hef ég kennt henni allt sem ég kann:-)
Símafyrirtækið sem við völdum til að eiga viðskipti við hér í Danmörku er ekki vinur okkar. Mér til mikillrar óánægju kom í ljós að það kostar alls ekki það sama að senda sms heim til Íslands og hér innan Danmerkur. Það kostar heilar 32 ISK að senda sms heim en aðeins 2.5 ISK að senda í danskt nr! Hvað er með þennan verðmun?? Þetta eru ekkert nema ræningjar sem bera enga virðingu fyrir útlendingum sem vilja bara geta sent krúttlegt sms til vinar á heimaslóðum sniff sniff. |
|
|